,,Þetta var skrifað í Stjörnuna\" - Fögnuður Stjörnunnar
Auglýsing


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan varð Íslandsmeistari í knattspyrnu fyrsta skipti í sögu félagsins eftir 2-1 útisigur á FH í hreinum úrslitaleik um titilinn. Rautt spjald, vafasöm mörk og mark úr víti í uppbótartíma sem tryggði Stjörnunni titilinn.
Atli Jóhannsson miðjumaður Stjörnunnar var alveg búinn á því eftir leikinn og var á fullu í fögnuði liðsins.
Atli Jóhannsson miðjumaður Stjörnunnar var alveg búinn á því eftir leikinn og var á fullu í fögnuði liðsins.
,,Þetta er frábært. Ég veit ekki hvað við komum oft aftur til baka í sumar, einum manni færri. Þetta er ótrúleg liðsheild, frábær karakter og sanngjarnt. Þetta var skrifað í Stjörnuna,\" sagði Atli og hélt svo áfram að fagna með liðinu og frábærum stuðningsmönnum Stjörnunnar.
Viðtalið og fögnuðinn er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Viðtalið og fögnuðinn er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.


