Fotbolti.net
21.10.26 - 19:18
Brynjar Ingi Erluson

Fernandes gagnrýndi þjálfarateymið eftir afhroðið

Bruno Fernandes í leiknum

Bruno Fernandes í leiknum

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, virtist beina gagnrýni að Michael Carrick og þjálfarateymi hans eftir 4-1 tapið gegn Como í Meistaradeildinni í kvöld.
Meistaradeildin: Man Utd fékk skell á Ítalíu - Hákon lagði upp í tapi
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Man Utd fékk skell á Ítalíu - Hákon lagði upp í tapi

United hefur ekki unnið í síðustu sjö leikjum og virðist andrúmsloftið innan herbúða félagsins orðið ansi spennuþrungið.

Fernandes mætti í viðtal hjá TNT Sports eftir leikinn og var greinilega niðurlútur. Hann sparaði heldur ekki stóru orðin þegar hann fór yfir frammistöðu liðsins.

„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við byrjum svona illa og fáum á okkur mark snemma. Við settum ekki næga pressu á boltann og hreyfingin hjá okkur án hans var ekki nógu góð. Það er fátt sem gengur upp hjá okkur þessa dagana.“

„Þegar við fáum á okkur mark svona snemma förum við strax að hugsa um að við séum að fara að tapa. Það er erfitt að losna úr því hugarfari og sýna hugrekki, halda boltanum og reyna að skapa eitthvað. Ef okkur tekst það ekki verður mjög erfitt að snúa þessu við,“
sagði Fernandes.

Hann gagnrýndi einnig taktískt upplegg Carrick og þjálfarateymisins og taldi að liðið hefði þurft að sýna meira hugrekki.

„Það var ákvörðun þjálfarateymisins að pressa ekki maður á mann heldur gefa þeim stundum meira pláss, bíða eftir þeim og reyna svo að vinna boltann. En þegar þú gefur svona liðum pláss geta þau farið að spila af meira sjálfstrausti.“

„Þetta er eitthvað sem stjórinn og þjálfarateymið þurfa að skoða, ekki ég. Stundum þarf maður að vera hugrakkari, taka áhættu með því að pressa hátt og gera andstæðingnum erfitt fyrir.“

„Þið sáuð hvernig Como gerði þetta. Miðvörðurinn þeirra var að elta mig alla leið inn á okkar eigin vallarhelming til að dekka mig. Við þurfum að geta gert það sama sem lið, en okkur tókst það ekki.“

„Þegar þú mætir liði sem er gott að spila sig í gegnum miðjuna með stuttum sendingum getur það refsað þér ef þú gefur því of mikinn tíma og pláss,“
sagði Fernandes.
Er Carrick búinn að missa klefann?

Er Carrick búinn að missa klefann?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.