22.10.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Scaloni heldur áfram með Argentínu

Lionel Scaloni

Mynd: EPA

Lionel Scaloni

Mynd: EPA
Lionel Scaloni, þjálfari argentínska landsliðsins, hefur samþykkt nýjan fjögurra ára samning við argentínska fótboltasambandið. Fabrizio Romano og Cesar Luis Merlo greina frá þessum tíðindum.
Scaloni tók við argentínska landsliðinu eftir HM 2018 og fjórum árum síðar gerði hann Argentínu að heimsmeisturum í Katar. Þar hjálpaði hann Lionel Messi að láta langþráðan draum rætast og vinna eina titilinn sem vantaði í glæsilegt safn hans.
Í sumar kom Scaloni Argentínu aftur alla leið í úrslitaleik HM, en í þetta sinn fór liðið ekki alla leið. Argentínumenn þurftu að sætta sig við tap gegn Spánverjum eftir framlengdan leik.
Eftir mótið viðurkenndi Scaloni að hann væri óviss um framtíð sína og virtist raunar frekar hallast að því að hætta. Argentínska sambandið vildi hins vegar halda honum og lagði allt kapp á að fá hann til að skipta um skoðun.
Sambandið lagði fram nýtt samningstilboð í síðasta mánuði og hefur Scaloni nú ákveðið að halda áfram með liðið næstu fjögur árin, eða út HM 2030.
Það eru frábærar fréttir fyrir Argentínumenn sem setja væntanlega stefnuna á að komast í úrslit HM í þriðja sinn í röð.

???????????? BREAKING: Lionel Scaloni has agreed to sign new deal as Argentina head coach until World Cup 2030.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) October 22, 2026
The proposal sent in September has been accepted, details being sorted then time to sign.
Scaloni said yes, as @CLMerlo reports. ???????? https://t.co/uVePo4xG0i