Fotbolti.net
22.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu atvikin: Ronaldo klúðraði víti og tveimur dauðafærum

Sjáðu atvikin: Ronaldo klúðraði víti og tveimur dauðafærum
Canon

Mynd: EPA

Portúgalinn Cristiano Ronaldo átti líklega einn sinn versta dag fyrir framan markið í 1-0 sigri Al Nassr á Neom í Sádi-Arabíu á þriðjudag.
Það var hreinlega eins og Ronaldo væri ekki ætlað að skora í þessum leik. Hann klúðraði vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks og fór síðan illa með tvö dauðafæri.

Í öðru þeirra fékk hann boltann á fjærstönginni með galopið mark fyrir framan sig, en tókst á einhvern ótrúlegan hátt að senda boltann yfir. Hann fékk síðan annað dauðafæri inni í teignum, en þar brást honum einnig bogalistin.

Hægt er að sjá vítaklúðrið og dauðafærin hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.