Fotbolti.net
22.10.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Mbappe jafnaði Zidane

Mbappe er kominn með 26 stoðsendingar í Meistaradeildinni

Mbappe er kominn með 26 stoðsendingar í Meistaradeildinni

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe jafnaði Zinedine Zidane, landsliðsþjálfara Frakklands, í fjölda stoðsendinga í Meistaradeild Evrópu í gær.
Mbappe lagði upp mark Arda Güler í síðari hálfleiknum, þótt það hafi í raun verið skottilraun hjá Frakkanum. Tyrkinn mætti hins vegar á marklínuna og stal markinu, sem varð til þess að Mbappe fékk stoðsendingu í staðinn.

Þetta var 26. stoðsending Mbappe í Meistaradeildinni og hefur hann þar með jafnað Zidane í öðru sæti yfir stoðsendingahæstu Frakka í sögu keppninnar.

Mbappe er nú aðeins einni stoðsendingu frá því að jafna met Karim Benzema, sem er efstur Frakka með 27 stoðsendingar.

Með þessu fór Mbappe jafnframt fram úr Thierry Henry, sem lagði upp 25 mörk í Meistaradeildinni á sínum ferli.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.