Fotbolti.net
21.10.26 - 19:45
Brynjar Ingi Erluson

Einkunnir Man Utd - „Hefur lítið sem ekkert fram að færa og á ekki skilið sæti í liðinu“

Einkunnir Man Utd - „Hefur lítið sem ekkert fram að færa og á ekki skilið sæti í liðinu“
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Margir leikmenn Manchester United fengu falleinkunn eftir 4-1 afhroðið gegn Como í Meistaradeildinni í kvöld, en Manchester Evening News gaf leikmönnum einkunnir fyrir frammistöðuna.
Fernandes gagnrýndi þjálfarateymið eftir afhroðið
TENGT EFNI

Fernandes gagnrýndi þjálfarateymið eftir afhroðið

Man Utd hefur nú leikið sjö leiki í röð án sigurs og átti liðið líklega sína verstu frammistöðu á tímabilinu gegn Como.

Noussair Mazraoui fékk verstu einkunn United-manna hjá MEN, aðeins 2.

„Hann byrjaði leikinn illa og náði aldrei að rétta úr kútnum. Las leikinn illa, var kraftlaus með boltann, lengi að koma honum frá sér og ekki nógu ákveðinn í tæklingum. Ömurleg frammistaða,“ segir í umsögn MEN.

Bruno Fernandes, fyrirliði United, fékk aðeins 3 í einkunn, rétt eins og Harry Maguire, Andrey Santos og Carlos Baleba.

„Kvartaði og vældi yfir samherjum sínum nánast allan fyrri hálfleikinn. Hefur lítið sem ekkert fram að færa um þessar mundir og á ekki skilið sæti í liðinu,“ sagði í umsögninni um Fernandes.

Senne Lammens fékk hæstu einkunn byrjunarliðsmanna United, 6, en varamennirnir Amad Diallo, Joshua Zirkzee og Harry Amass fengu sömu einkunn.

Einkunnir Man Utd: Lammens (6), Dalot (4), De Ligt (5), Maguire (3), Mazraoui (2), Santos (3), Mount (4), Fernandes (3), Tielemans (4), Cunha (4), Mbeumo (5).
Varamenn: Baleba (3), Amad (6), Zirkzee (6), Amass (6).
Bruno Fernandes var slakur

Bruno Fernandes var slakur

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.