22.10.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona ætlar að styrkja varnarlínuna

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona ætla sér að styrkja varnarlínuna í janúarglugganum og fá öflugan miðvörð til að létta álaginu af hinum unga og efnilega Pau Cubarsi. Þetta kemur fram hjá Sport.
Börsungar eru farnir að átta sig á því að Cubarsi er í raun eini miðvörðurinn í hópnum sem félagið getur treyst á til fulls og vilja því bregðast við áður en álagið fer að segja til sín.
Félagið vill forðast að Cubarsi endi á meiðslalistanum og stefnir því á að fá heimsklassa miðvörð til liðs við sig í janúar.
Barcelona hefur ekki úr mörgum hreinræktuðum miðvörðum að velja. Auk Cubarsi eru Andreas Christensen, Gerard Martin og Eric Garcia í hópnum, en þeir Martin og Jules Kounde geta einnig leyst stöðu miðvarðar þótt þeir spili líka sem bakverðir.
Félagið er sagt hafa Tarik Muharemovic hjá Leeds og Arthur Dias hjá Athletico Paranaense til skoðunar, en einnig kemur til greina að sækja miðvörð í allra hæsta gæðaflokki.