22.10.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Van Dijk: Ég átti slæman dag á skrifstofunni

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, viðurkenndi að hafa átt slæman dag á skrifstofunni í 4-3 sigrinum gegn Villarreal í Meistaradeildinni á þriðjudag.

TENGT EFNI
Einkunnir úr Meistaradeildinni: Foden og Ngumoha í sérflokki - Van Dijk ólíkur sjálfum sér
Van Dijk gerði mikil mistök í fyrsta marki Villarreal þegar hann ætlaði að skalla boltann til baka á Alisson. Boltinn fór hins vegar beint fyrir fætur Georges Mikautadze sem renndi honum undir brasilíska markvörðinn og í netið.
„Ég var eiginlega að bíða eftir því að þið mynduð spyrja mig út í mína eigin frammistöðu, en þetta var hræðileg byrjun. Það er oft talað um að það sé á brattann að sækja og fyrir varnarmann er sérstaklega erfitt að koma til baka eftir svona mistök.“
„Ég reyndi auðvitað mitt besta, en persónulega var þetta bara slæmur dagur á skrifstofunni. Við erum hins vegar ellefu saman í þessu og þurftum að snúa leiknum við. Það var það sem skipti mestu máli.“
„Því miður gerast svona hlutir í fótboltanum og sem betur fer hefur þetta ekki gerst oft á mínum ferli. Ég var einfaldlega ekki upp á mitt besta í þessum leik, en við unnum og það er það sem skiptir máli. Þetta snýst ekki um mig heldur liðið í heild sinni. Við unnum leikinn og náðum í þrjú stig,“ sagði Van Dijk.