Fotbolti.net
22.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Flick: Titlar vinnast ekki í október

Flick: Titlar vinnast ekki í október
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Hansi Flick, þjálfari Barcelona, segist ekki hafa miklar áhyggjur af 4-2 tapinu gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni.
Flick: Þetta er engin afsökun
TENGT EFNI

Flick: Þetta er engin afsökun

Börsungar voru afar opnir varnarlega gegn Evrópumeisturunum og fengu á sig fjögur mörk í leik sem var annars hin besta skemmtun fyrir hlutlausa áhorfendur.

Flick sagði í viðtali á þriðjudag að hann hefði verið ánægður með margt í frammistöðu sinna manna, en PSG væri einfaldlega besta lið heims um þessar mundir. Hann minnti jafnframt á að tímabilið væri rétt að byrja og stærstu titlarnir ráðast ekki í október.

„Ég verð að minna á að það er ekki hægt að vinna titla í október. Titlarnir, og þá sérstaklega Meistaradeildin, vinnast í maí og júní,“ sagði Flick.

Raphinha, leikmaður Barcelona, tók í sama streng og gerði ekki mikið úr tapinu. Hann sagði að nú væri mikilvægast að horfa fram á veginn.

„Við töpuðum bara þremur stigum. Nú þurfum við að undirbúa okkur fyrir El Clásico og einbeita okkur að því sem fram undan er,“ sagði Raphinha.

El Clásico fer fram um helgina, en Barcelona verður án Dani Olmo sem meiddist gegn PSG. Real Madrid verður á meðan án Vini Jr sem tekur út leikbann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.