22.10.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon
Fjögur ár á Íslandi og alltaf í liði ársins

Víkingar töpuðu engum deildarleik á tímabilinu þegar Gunnar var í byrjunarliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar á sínu fyrsta tímabili með Víkingi.

Fótbolti.net opinberaði í vikunni lið ársins í Bestu deild karla. Færeyski varnarmaðurinn Gunnar Vatnhamar var í liðinu fjórða árið í röð.
Gunnar spilaði á Íslandi í fjögur tímabil og í öll tímabilin var hann valinn í lið ársins. Það segir það sem segja þarf. Hann var átta sinnum í liði umferðarinnar þetta tímabilið og hjálpaði Víkingi að innsigla Íslandsmeistaratitilinn áður en hann hélt til Vejle í Danmörku.

TENGT EFNI
Úrvalslið ársins í Bestu deildinni 2026
Gunnar er dáður í Víkinni og stóðu stuðningsmenn Víkings lengi eftir kveðjuleik hans og sungu honum til heiðurs.
„Það er með trega í hjarta sem ég kveð Víking. Þetta er frábær staður til að vera á. Þetta er nýr kafli í mínu lífi. Mig langar til þess að prufa eitthvað nýtt. Ég er mjög ánægður hérna og ég ætla að njóta hverrar stundar sem er eftir hérna,“ sagði Gunnar við Fótbolta.net eftir að tilkynnt var að hann væri á förum.
„Þetta er mjög erfið ákvörðun. Víkingur er stór hluti af mínu lífi. Þetta er ákvörðun sem að ég tók og ég stend við hana. Ég held að þetta sé gott skref. En auðvitað er þetta erfið ákvörðun og mér finnst leiðinlegt að þurfa að kveðja. Svona er lífið."
Gunnar kom til Víkings í apríl 2023 en félagið náði í hann eftir að Kyle McLagan meiddist illa.
„Það er með trega í hjarta sem ég kveð Víking. Þetta er frábær staður til að vera á. Þetta er nýr kafli í mínu lífi. Mig langar til þess að prufa eitthvað nýtt. Ég er mjög ánægður hérna og ég ætla að njóta hverrar stundar sem er eftir hérna,“ sagði Gunnar við Fótbolta.net eftir að tilkynnt var að hann væri á förum.
„Þetta er mjög erfið ákvörðun. Víkingur er stór hluti af mínu lífi. Þetta er ákvörðun sem að ég tók og ég stend við hana. Ég held að þetta sé gott skref. En auðvitað er þetta erfið ákvörðun og mér finnst leiðinlegt að þurfa að kveðja. Svona er lífið."
Gunnar kom til Víkings í apríl 2023 en félagið náði í hann eftir að Kyle McLagan meiddist illa.

Gunnar á sínu fyrsta tímabili með Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla

Mynd: Elvar Geir Magnússon