Fotbolti.net
22.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Wilshere í stympingum eftir leik - Minnti á Conte og Tuchel

Jack Wilshere er stjóri Luton

Jack Wilshere er stjóri Luton

Canon

Mynd: Luton Town

Jack Wilshere, stjóri Luton Town, lenti í hörku stympingum við Daniel Stendel, stjóra Barnsley, eftir leik liðanna í ensku C-deildinni á þriðjudag.
Wilshere, sem var á sínum tíma einn efnilegasti fótboltamaður Englands, tók við Luton á síðasta ári og vann deildarbikar neðri deildarliða á sínu fyrsta tímabili. Liðið endaði hins vegar í sjöunda sæti C-deildarinnar og Wilshere tókst því ekki að koma því beint aftur upp í B-deildina.

Þetta tímabil hefur heldur ekki byrjað sérstaklega vel og situr Luton nú í 14. sæti. Liðið komst þó aftur á sigurbraut á þriðjudag með 2-1 sigri gegn Barnsley, en það var ekki bara inni á vellinum sem hiti var í mönnum.

Eftir leikinn tók Wilshere í hönd Stendel, sem virtist hins vegar ekki ætla að sleppa takinu. Úr urðu töluverðar stympingar og þurftu menn úr þjálfarateymum beggja liða að skerast í leikinn. Það tók nokkra stund að skilja mennina að.

Atvikið minnti óneitanlega á hið fræga handaband Antonio Conte og Thomas Tuchel eftir leik Chelsea og Tottenham fyrir nokkrum árum, en uppákomuna má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.