Liverpool hefur áhuga á Van de Ven - Palmer til í að spila fyrir Man Utd - Real Madrid og Man Utd sýna Neves áhuga
   sun 04. október 2020 23:07
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Aston Villa og Liverpool: Adrian og Gomez verstir
Aston Villa rúllaði yfir Englandsmeistara Liverpool í síðasta leik fyrir landsleikjahlé. Lærisveinar Dean Smith voru 4-1 yfir í hálfleik og unnu að lokum 7-2.

Sky Sports gefur vanalega leikmönnum einkunnir en í þetta sinn eru einkunnir teknar af vefsíðun Liverpool Echo og Birmingham Mail.

Birmingham Mail var afar rausnarlegt í einkunnagjöf sinni til leikmanna Aston Villa þar sem fjórir leikmenn fengu 10 í einkunn. Ollie Watkins var valinn sem maður leiksins enda skoraði hann þrennu.

Jack Grealish, John McGinn og Tyrone Mings áttu einnig fullkominn leik samkvæmt vefsíðu Birmingham Mail.

Adrian og Joe Gomez þóttu verstir í liði Liverpool á vefsíðu Liverpool Echo og fengu þeir 3 í einkunn enda hægt að kenna þeim um nokkur af mörkunum sjö.

Mohamed Salah var besti leikmaður Liverpool enda setti hann tvennu í leiknum en Andy Robertson og Takumi Minamino voru líka góðir.

Aston Villa: Martinez (9), Cash (8), Konsa (9), Mings (10), Targett (8), D. Luiz (8), McGinn (10), Barkley (9), Trezeguet (9), Watkins (10), Grealish (10)
Varamenn: Nakamba (7), Elmohamady (7)

Liverpool: Adrian (3), Alexander-Arnold (4), Gomez (3), Van Dijk (5), Robertson (6), Fabinho (4), Wijnaldum (4), Keita (5), Salah (7), Firmino (4), Jota (5)
Varamenn: Minamino (6), Jones (6), Milner (5)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 22 15 5 2 40 14 +26 50
2 Man City 22 13 4 5 45 21 +24 43
3 Aston Villa 22 13 4 5 33 25 +8 43
4 Liverpool 22 10 6 6 33 29 +4 36
5 Man Utd 22 9 8 5 38 32 +6 35
6 Chelsea 22 9 7 6 36 24 +12 34
7 Brentford 22 10 3 9 35 30 +5 33
8 Newcastle 22 9 6 7 32 27 +5 33
9 Sunderland 22 8 9 5 23 23 0 33
10 Everton 22 9 5 8 24 25 -1 32
11 Fulham 22 9 4 9 30 31 -1 31
12 Brighton 22 7 9 6 32 29 +3 30
13 Crystal Palace 22 7 7 8 23 25 -2 28
14 Tottenham 22 7 6 9 31 29 +2 27
15 Bournemouth 22 6 9 7 35 41 -6 27
16 Leeds 22 6 7 9 30 37 -7 25
17 Nott. Forest 22 6 4 12 21 34 -13 22
18 West Ham 22 4 5 13 24 44 -20 17
19 Burnley 22 3 5 14 23 42 -19 14
20 Wolves 22 1 5 16 15 41 -26 8
Athugasemdir
banner
banner