Fotbolti.net
04.10.26 - 20:31
Ívan Guðjón Baldursson

Haaland fór haltrandi af velli

Haaland fór haltrandi af velli
Canon

Mynd: EPA

Norska markavélin Erling Braut Haaland fór haltrandi af velli í leik liðsins á útivelli gegn Portúgal sem er í gangi þessa stundina.
Byrjunarlið kvöldsins: Bruno Fernandes byrjar - Selvik í markið
TENGT EFNI

Byrjunarlið kvöldsins: Bruno Fernandes byrjar - Selvik í markið

Ståle Solbakken landsliðsþjálfari Noregs var ekkert að spara sína lykilmenn í landsleikjaglugganum. Hann lét Haaland og Martin Ödegaard, sem eru algjörir lykilmenn fyrir stórveldi Manchester City og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni, spila allar mínútur sem hann gat og fór Haaland meiddur af velli fyrir skömmu.

Haaland og Ödegaard voru báðir í byrjunarliðinu gegn Portúgal eftir að hafa spilað allar mínúturnar í landsleikjahlénu. Þeir spiluðu rúmar 270 mínútur á sjö dögum og ef Ödegaard klárar viðureignina í kvöld mun hann hafa spilað 360 mínútur + uppbótartíma á tíu dögum.

Ekki er ljóst hvort að Haaland hafi meiðst alvarlega en útlit er fyrir að einungis sé um hnjask að ræða. Hann haltraði síðustu mínúturnar sem hann var á vellinum og bað um skiptingu þegar staðan var ennþá jöfn, 1-1. Portúgalir náðu forystunni skömmu síðar og er staðan 2-1 fyrir heimamenn þegar átta mínútur eru eftir af venjulegum leiktíma.

Man City heimsækir Liverpool í stórleik í ensku úrvalsdeildinni næsta sunudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.