04.10.26 - 18:01
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið kvöldsins: Bruno Fernandes byrjar - Selvik í markið

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það eru fjórir leikir á dagskrá í efstu deild Þjóðadeildarinnar í kvöld og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Portúgal mætir Noregi í afar spennandi slag og verða heimamenn án Cristiano Ronaldo eftir að stórstjarnan yfirgaf landsliðsbúðirnar í fýlukasti á dögunum.
Jorge Jesus landsliðsþjálfari gerir tvær breytingar frá fyrri leiknum gegn Noregi þar sem Bruno Fernandes og Vitinha koma inn í byrjunarliðið. Bruno var fjarverandi vegna meiðsla þegar Portúgal heimsótti Noreg fyrir viku síðan á meðan Vitinha kom inn af bekknum.
Joao Neves og Pedro Neto, sem voru í byrjunarliðinu gegn Noregi, setjast á bekkinn. Goncalo Ramos skoraði sigurmarkið í fyrri leiknum og byrjar hann aftur í fremstu víglínu.
Ståle Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs, gerir þrjár breytingar frá tapinu gegn Portúgal. Egil Selvik tekur sér stöðu á milli stanganna á meðan Leo Östigard og David Wolfe koma inn í varnarlínuna.
Erling Braut Haaland virðist vera óþreytandi og er enn eina ferðina í byrjunarliðinu. Haaland er búinn að spila allar mínúturnar í þremur leikjum í landsleikjahlénu og er spurning hvort hann fái einhverja hvíld þegar hann snýr aftur til Manchester.
Í öðrum leikjum kvöldsins spilar Wales við Danmörku á meðan Þýskaland heimsækir funheitt lið Grikklands og Holland tekur á móti Serbíu.
Portúgal: D.Costa, Cancelo, Dias, R.Veiga, Mendes, Palhinha, Vitinha, Fernandes, Conceicao, Felix, Ramos
Noregur: Selvik, Aursnes, Ajer, Östigard, Wolfe, Berge, Berg, Ödegaard, Schjelderup, Nusa, Haaland
Wales: Ward, Williams, Cabango, Davies, Dasilva, James, Ampadu, Cullen, Johnson, Thomas, Koumas
Danmörk: Hermansen, Kristensen, Andersen, Provstgaard, Mæhle, Höjbjerg, Froholdt, Hjulmand, Isaksen, Daramy, Höjlund
Grikkland: Tzolakis, Saliakas, Mavropanos, Koulierakis, Tsimikas, Masouras, Kourbelis, Zafeiris, Kyziridis, Ioannidis, Pavlidis
Þýskaland: Urbig, Treu, Thiaw, Anton, Raum, Pavlovic, Bischof, Wirtz, Karl, Scherhant, Burkardt
Holland: Verbruggen, Dumfries, Van Dijk, Koopmeiners, Van de Ven, Gravenberch, Veerman, Reijnders, Summerville, Lang, Meerdink
Serbía: V.Milinkovic-Savic, Gudelj, Babic, Pavlovic, Terzic, Nedeljkovic, Stankovic, Lukic, Samardzic, Tadic, Cvetkovic