Fotbolti.net
04.11.26 - 11:23
Elvar Geir Magnússon

Palace tapaði áfrýjuninni

Palace tapaði áfrýjuninni
Canon

Mynd: EPA

Crystal Palace hefur tapað áfrýjun sinni vegna rauða spjaldsins sem franski sóknarmaðurinn Jean-Philippe Mateta fékk í tapleik gegn Tottenham á laugardaginn.

Mateta fer því í þriggja leikja bann; hann missir af leiknum gegn Liverpool á sunnudag, útileiknum gegn Coventry þann 21. nóvember og heimaleik gegn Hull þann 29. nóvember.

Mateta verður hins vegar gjaldgengur í leik Palace gegn Hoffenheim í Evrópudeildinni á morgun, sem og í leiknum gegn Real Sociedad þann 26. nóvember. Bannið gildir ekki í UEFA leikjum.
Palace áfrýjar rauða spjaldinu - Sjáðu brotið hjá Mateta
TENGT EFNI

Palace áfrýjar rauða spjaldinu - Sjáðu brotið hjá Mateta

Dómarinn Michael Oliver sýndi framherjanum beint rautt spjald fyrir brot á Micky van de Ven eftir aðeins þrettán mínútna leik, þegar staðan var enn 0-0. Oliver gaf upphaflega gult spjald en það var uppfært eftir VAR-skoðun.

Tottenham vann leikinn 2-0 manni fleiri. Palace mætir Liverpool um helgina en mikil pressa er á Pierre Sage, stjóra Palace, eftir vonbrigðabyrjun á tímabilinu.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.