Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 04. desember 2020 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland um helgina - Leipzig fer til München
Tíunda umferð þýsku deildarinnar fer fram um helgina en Bayern München spilar við RB Leipzig á Allianz-leikvanginum á morgun.

Hertha Berlín og Union Berlin byrja helgina er liðin mætast klukkan 19:30 í kvöld.

Á morgun eru svo fimm leikir á dagskrá. Borussia Dortmund spilar við Eintracht Frankfurt klukkan 14:30 áður en Bayern München spilar við sterkt lið RB Leipzig klukkan 17:30.

Tveir leikir eru á sunnudaginn. Werder Bremen mætir nýliðum Stuttgart áður en Schalke spilar við Bayer Leverkusen.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur:
19:30 Hertha - Union Berlin

Laugardagur:
14:30 Arminia Bielefeld - Mainz
14:30 Eintracht Frankfurt - Dortmund
14:30 Freiburg - Gladbach
14:30 Köln - Wolfsburg
17:30 Bayern - RB Leipzig

Sunnudagur:
14:30 Werder - Stuttgart
17:00 Schalke 04 - Leverkusen
Athugasemdir
banner