Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. janúar 2021 10:30
Magnús Már Einarsson
Ramos sagður á förum - Með Messi til PSG?
Ramos hefur spilað með Real Madrid síðan árið 2005.
Ramos hefur spilað með Real Madrid síðan árið 2005.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn öflugi Sergio Ramos hefur ákveðið að framlengja ekki samning sinn við Real Madrid samkvæmt frétt spænska íþróttablaðsins Marca í dag.

Hinn 34 ára gaml Ramos verður samningslaus í sumar og má hefja viðræður við önnur félög.

Viðræður hafa verið í gangi um nýjan tveggja ára samning hjá Real Madrid en þær hafa gengið illa og nú er sagt að Ramos ætli að fara annað næsta sumar.

Spænskir fjölmiðar segja að Ramos gæti farið til PSG í sumar og Lionel Messi gæti farið sömu leið frá Barcelona.

„Tilboðið sem þið gáfuð mér, ég mun ekki samþykkja það.,...hjá PSG segjast þeir ætla að búa til lið með mér og Messi," sagði Ramos við Florentino Perez, forseta Real Madrid, samkvæmt spænskum fjölmiðlum.
Athugasemdir
banner
banner
banner