Fotbolti.net
05.01.21 - 14:09
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Real Madrid að vinna baráttuna um Alaba - Liverpool hefur áhuga

David Alaba.

David Alaba.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska stórliðið Real Madrid er að vinna kapphlaupið um varnarmanninn David Alaba en samningur hans við Bayern München rennur út í sumar.

Þessi 28 ára Austurríkismaður hefur verið í tólf ár hjá Bayern en vill nú yfirgefa Þýskalandsmeistarana.
Real Madrid hefur boðið Alaba langtímasamning sem talinn er vera fjögur eða fimm ár.

Liverpool hefur áhuga á Alaba og hefur enska félagið haft samband við talsmenn leikmannsins. En það hefur lengi verið draumur hjá Alaba að spila fyrir Real Madrid.

Ekkert bendir til þess núna að Alaba skipti um félag í janúar en hann hefur unnið níu deildartitla og tvo Meistaradeildartitla fyrir félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.