Tæplega 200 þúsund lesendur BBC tóku þátt í kosningu um besta markvörð úrvalsdeildarsögunnar. Tíu atkvæðahæstu markverðina má sjá hér fyrir neðan en til gamans má geta að fimm þeirra léku fyrir Manchester City á einhverjum tímapunkti ferilsins. Manchester United á þrjá markverði á listanum. Gary Lineker, Alan Shearer og Ian Wright ræddu niðurstöðurnar saman.
Petr Cech (Chelsea) - 202 hrein lök í 443 leikjum. Fjórir úrvalsdeildartitlar. Tvisvar sinnum í liði ársins. ,,Petr Cech hélt hreinu í næstum öðrum hverjum úrvalsdeildarleik. Hann vann fjóra gullhanska, fjóra úrvalsdeildartitla, Meistaradeildina, fimm FA bikara, þrjá deildabikara, Evrópudeildina og var valinn besti knattspyrnumaður Tékklands níu sinnum," sagði Lineker.
Athugasemdir