Fotbolti.net
05.05.21 - 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fimm leikmenn sem Mourinho gæti fengið til Roma

Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho verður stjóri Roma á næsta tímabili, það varð ljóst í gær þegar hann var tilkynntur og fyrr um daginn greint frá því að Paulo Fonseca myndi hætta í sumar.

Mourinho var rekinn frá Tottenham í apríl og hefur áður stýrt Porto, Chelsea, Inter, Real Madrid og Manchester United á ferlinum.

Mirror tók saman lista með fimm leikmönnum sem Mourinho gæti reynt að fá til Rómar.
Móri hefur tvisvar fengið Nemanja Matic í sitt lið. Serbinn verður 33 ára í sumar.

Móri hefur tvisvar fengið Nemanja Matic í sitt lið. Serbinn verður 33 ára í sumar.

Canon

Mynd: Getty Images

Eric Dier er í uppáhaldi hjá Móra. Kostur að Dier kann portúgölsku.

Diogo Dalot var fenginn til United sumarið 2018. Mourinho er hrifinn af leikmönnum með portúgalska tengingu.

Pierre-Emile Höjbjerg. Móri keypti Danann síðasta sumar og er akkúrat sú týpa af leikmanni sem Móri er hrifinn af.

Mourinho seldi Juan Mata frá Chelsea árið 2014 og því var spurning hvernig Mata myndi passa inn í plön hans hjá United tveimur árum seinna. Mata spilaði vel undir stjórn Móra í rauðu og verður samningslaus í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.