Í vináttulandsleik árið 2004
Enska landsliðið rifjar það upp á Facebook-síðu sinni í dag þegar England vann 6-1 sigur á Íslandi á þessum degi fyrir 16 árum síðan.
Leikurinn var hluti af undirbúningi England fyrir EM 2004, þar sem liðið féll svo úr leik í 8-liða úrslitum eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Portúgal.
Lið Englands var gríðarlega sterkt á þessum tíma, en þegar á stórmótin var komið þá gengu hlutirnir ekki upp. Í liðinu voru leikmenn eins og David Beckham, Frank Lampard, Paul Scholes, Steven Gerrard og Wayne Rooney. Bara svo einhverjir séu nefndir.
Leikurinn fór eins og áður kemur fram 6-1, en þessar tvær þjóðir mættust svo aftur á EM 2016, í Nice. Þá hafði Ísland betur, 2-1, í leik sem var í 16-liða úrslitunum á því móti.
Hér að neðan má sjá svipmyndir úr leiknum árið 2004. Heiðar Helguson skoraði mark Íslands.
Athugasemdir