Fotbolti.net
14.09.26 - 19:35
Ívan Guðjón Baldursson

Richarlison fær ekki að spila í deildabikarnum

Richarlison fær ekki að spila í deildabikarnum
Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi þjálfari Tottenham svaraði spurningum á fréttamannafundi í dag. Tottenham heimsækir Liverpool í enska deildabikarnum annað kvöld og staðfesti De Zerbi að Richarlison verður ekki í leikmannahópnum.
De Zerbi um Richarlison: Ég veit sannleikann
TENGT EFNI

De Zerbi um Richarlison: Ég veit sannleikann

Richarlison hefur staðið í rifrildum við Tottenham og segist De Zerbi ekki vilja blanda sér frekar í þær deilur.

„Við gerðum markalaust jafntefli við Everton um helgina en spiluðum mjög vel fyrstu 25 til 30 mínútur leiksins. Á þeim tíma hefðum við getað skorað tvö mörk, en boltinn rataði ekki í netið og þá misstu leikmenn sjálfstraust. Við verðum að bæta okkur og ég veit að við getum það, við erum með frábæra fótboltamenn í hópnum. Við eigum ennþá eftir að skora mark, en við höfum í það minnsta haldið hreinu tvo leiki í röð," sagði De Zerbi áður en hann var spurður út í Richarlison.

„Ég stend í miðjunni í þessu máli og get ekki tjáð mig mikið um það útaf því að það er ekki í mínum verkahring. Ég talaði við hann á undirbúningstímabilinu og bauð honum að framlengja samninginn við félagið, en hann afþakkaði boðið. Þar með var mínum hluta lokið."

Richarlison er ekki skráður í úrvalsdeildarhóp Tottenham og fær heldur ekki tækifæri í deildabikarnum, þrátt fyrir að hafa skorað 4 mörk í 7 leikjum með Tottenham gegn Liverpool á undanförnum árum.

„Staðan með Richarlison er ennþá sú sama, bæði í deild og bikar. Vandamálið er á milli leikmannsins og félagsins, ég tengist því ekki. Ég hef reynt að sannfæra hann um að vera áfram hjá félaginu og um að vera partur af verkefninu en þær tilraunir gengu ekki upp."
Richarlison fær ekki að spila í deildabikarnum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.