„Ég er mjög gíraður. Það verður mjög spennandi verkefni að mæta Englendingum þar sem þeir eru að spila sinn síðasta leik fyrir EM. Þeir vilja koma inn af fullum krafti en það er okkar að stoppa það," sagði Stefán Teitur Þórðarson, landsliðsmaður Íslands.
„Þetta er stærsta og skemmtilegasta sviðið að spila á, að spila á móti Englendingum, það verður ekki mikið stærra."
„Þetta verður erfiður fótboltaleikur. Við verðum að verjast gríðarlega vel sem lið og reyna að nýta þau tækifæri sem við fáum, okkar föstu leikatriði og skyndísóknir," sagði Stefán Teitur.
„Ég væri mjög mikið til í að kljást við (Declan) Rice og (Jude) Bellingham, þeir eru tveir af bestu miðjumönnum í heiminum þannig það verður mjög gaman," sagði Stefán Teitur.
Bellingham verður hins vegar ekki með gegn Íslandi.
„Jæja, þá er það bara Rice," sagði Stefán Teitur léttur í bragði.