Fotbolti.net
26.06.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Rautt spjald í sigri Leiknis í Breiðholtsslagnum - Níu leikmenn HK unnu

Shkelzen Veseli

Shkelzen Veseli

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Fjórir leikir fóru fram í 11. umferð Lengjudeildarinnar í kvöld. Leiknir fékk ÍR í heimsókn í Breiðholtsslag.

ÍR komst yfir þegar Ágúst Unnar Kristinsson skoraði skrautlegt mark eftir fyrirgjöf.

Það var hiti í mönnum undir lok fyrri hálfleiks og Eiríkur Örn Beck og Bergvin Fannar Helgason fengu gult spjald ásamt Brynjari Birni Gunnarssyni, þjálfara Leiknis.
Leiknir jafnaði metin eftir tíu mínútna leik þegar Þorsteinn Emil Jónsson skoraði eftir mikinn darraðadans inn á teig ÍR. Shkelzen Veseli kom síðan Leiknismönnum yfir eftir frábært samspil við Anton Fannar Kjartansson þegar um tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.

ÍR-ingar urðu svo manni færri stuttu síðar þegar Bergvin Fannar Helgason fékk rautt spjald fyrir að fara með takkana í Ólaf Íshólm Ólafsson.

ÍR-ingar voru nálægt því að jafna metin í blálokin en Ólafur varði og Eiríkur Beck bjargaði á línu í kjölfarið. Sterkur sigur Leiknismanna staðreynd.

Það var ótrúlegur leikur í Árbæ þar sem Fylkismenn töpuðu gegn níu leikmönnum HK.

Ívar Örn Jónsson var nálægt því að skora sjálfsmark fyrir HK þegar hann sendi til baka á Ólaf Örn Ásgeirsson. Hann hitti ekki boltann en náði að bjarga á síðustu stundu.

Fylkismenn voru betri en HK komst yfir gegn gangi leiksins þegar Dominik Radic skoraði eftir langt innkast.

HK varð manni færri undir lok leiksins þegar Svavar Örn Þórðarson braut á Guðmundi Tyrfingssyni þegar hann var að sleppa í gegn. Síðan fékk Dagur Ingi Axelsson rautt spjald í uppbótatíma og HK tveimur mönnum færri.

Þrátt fyrir það skoraði Aron Kristófer Lárusson af löngu færi þar sem Ólafur Kristófer var kominn langt út úr markinu og tryggði HK sigurinn.

Aftureldng fékk Njarðvík í heimsókn og vann kærkominn sigur eftir tvö deildartöp í röð.

Afturelding náði forystunni þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma Bart Kooistra slapp í gegn og sendi á Joacim Holtan sem skoraði af öryggi. Birkir Már Sævarsson innsiglaði síðan sigur Aftureldingar í uppbótatíma.

Grindavík og Ægir mættust og liðin fengu góð tækifæri til að skora en leiknum lauk með markalausu jafntefli.

Afturelding 2 - 0 Njarðvík
1-0 Joacim Emil Godhei Holtan ('82 )
2-0 Birkir Már Sævarsson ('91 )
Lestu um leikinn

Leiknir R. 2 - 1 ÍR
0-1 Ágúst Unnar Kristinsson ('27 )
1-1 Þorsteinn Emil Jónsson ('55 )
2-1 Shkelzen Veseli ('79 )
Rautt spjald: Bergvin Fannar Helgason, ÍR ('81) Lestu um leikinn

Fylkir 0 - 2 HK
0-1 Dominik Radic ('41 )
0-2 Aron Kristófer Lárusson ('95 )
Rautt spjald: ,Svavar Örn Þórðarson, HK ('87)Dagur Ingi Axelsson, HK ('91) Lestu um leikinn

Grindavík 0 - 0 Ægir
Lestu um leikinn
Birkir Már

Birkir Már

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.10+1322
2Fylkir11+521
3Afturelding10+819
4Vestri11+219
5HK11+119
6Leiknir R.11+218
7Njarðvík11+214
8Grótta9-512
9ÍR11-611
10Grindavík10-39
11Ægir11-88
12Völsungur10-116
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.