HM: Dembele fór hamförum gegn Norðmönnum - Senegal með stórsigur

Ousmane Dembele fór hamförum

Mynd: EPA

Senegal á enn möguleika á að komast áfram

Mynd: EPA

Ousmane Dembele fór hamförum

Mynd: EPA
Lokaumferðin í I-riðli á HM fór fram í kvöld. Frakkar unnu sannfærandi sigur á Norðmönnum og stóðu uppi sem sigurvegarar í riðlinum.
Frakkar komust yfir snemma leiks þegar Kylian Mbappe fann Ousmane Dembele á hægri kantinum. Hann kom sér inn á teiginn og skoraði með skoti í fjærhornið.

Það var svipuð uppskrift um stundafjórðungi síðar þegar Mbappe fann Dembele og hann skoraði með skoti fyrir utan teiginn. Norðmenn minnkuðu muninn strax í kjölfarið þegar Thelo Aasgaard skoraði með skoti úr teignum.
Dembele fullkomnaði þrennu sína þegar rúmur hálftími var liðinn af leiknum og brekkan orðin ansi brött fyrir Norðmenn.
Norðmenn komu sterkir út í seinni hálfleikinn og fengu vítaspyrnu á 50. mínútu en Mike Maignan varði spyrnuna frá Jörgen Strand Larsen sem var í fremstu víglínu en Erling Haaland kom ekkert við sögu rétt eins og Martin Ödegaard.
Desire Doue innsiglaði sigur Frakka í blálokin þegar hann skallaði boltann í netið eftir sendingu frá Bradley Barcola. Frakkland mætir líklega Svíþjóð í 32-liða úrslitum og Norðmenn Fílabeinsströndinni.
Senegal er í góðri stöðu að komast áfram upp úr 3. sætinu eftir öruggan sigur á Íran sem er úr leik.
Habib Diarra kom Senegal yfir snemma leiks þegar hann skoraði eftir skalla frá Abdoulaye Seck. Stuttu síðar urðu Írakar manni færri þegar Rebin Sulaka var rekinn af velli fyrir að ræna upplögðu marktækfæri.
Mörkin urðu ekki fleiri í fyrri hálfleik en Senegalar skoruðu þrjú í seinni og unnu öruggan 5-0 sigur. Pape Gueye og Iliman Ndiaye skoruðu glæsileg mörk með skotum fyrir utan teiginn.
Noregur 1 - 4 Frakkland
0-1 Ousmane Dembele ('7 )
0-2 Ousmane Dembele ('20 )
1-2 Thelo Aasgaard ('21 )
1-3 Ousmane Dembele ('32 )
1-3 Jorgen Strand Larsen ('50 , Misnotað víti)
1-4 Desire Doue ('90 )
Senegal 5 - 0 Írak
1-0 Habib Diarra ('4 )
2-0 Ismaila Sarr ('56 )
3-0 Pape Gueye ('59 )
4-0 Pape Gueye ('71 )
5-0 Iliman Ndiaye ('82 )
Rautt spjald: Rebin Sulaka, Iraq ('13)