Fotbolti.net
26.06.26 - 21:50
Ívar Björgvinsson

Nenad: Ég er ekki sáttur við stöðuna

Auglýsing
Nenad: Ég er ekki sáttur við stöðuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin

Grindavík og Ægir gerðu markalaust jafntefli á Stakkavíkurvelli í 11. umferð Lengjudeildar karla. Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í Nenad Zivanovic, þjálfara Ægis, eftir leikinn. 

Lestu um leikinn: Grindavík 0 - 0 Ægir

„Leikurinn var mjög erfiður og bæði lið höfðu miklu að tapa svo leikurinn varð lokaður fyrir vikið. Bæði lið fengu færi en hvorugt liðið fékk dauðafæri nema kannski Jordan í lokinn þegar hann ákveður að taka boltann niður í stað þess að skjóta.''

Fannst Nenad jafntefli því vera sanngjörn niðurstaða?

„Við fengum margar álitlegar stöður en markmennirnir í leiknum áttu báðir góðar vörslur. Vörn okkar og Grindavíkur voru góðar og jafntefli var klárlega sanngjörn niðurstaða. Ef við eða Grindavík hefðum unnið þá hefði það ekki verið mjög sanngjarn sigur.''

Finnst Nenad hann sjálfur vera reynslunni ríkari í ár miðað við árið 2023 þegar Ægir var í Lengjudeildinni síðast og féll.

„Ég er ekki ánægður með stöðuna eins og hún er núna, mér finnst við eiga að vera með meira en átta stig. En það er góður frasi sem segir að klár einstaklingur lærir af mistökum annarra og heimskur lærir af mistökum frá sjálfum sér, ég er í seinni hópnum,'' sagði Nenad og hló.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.