Fotbolti.net
26.06.26 - 21:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Anderson tæpur fyrir leikinn gegn Panama

Anderson tæpur fyrir leikinn gegn Panama
Canon

Mynd: EPA

Elliot Anderson er tæpur fyrir lokaleik Englands gegn Panama í L-riðli á HM vegna vöðvameiðsla. The Athletic greinir frá þessu.

Anderson var í byrjunarliðinu í fyrstu en er tæpur fyrir síðasta leikinn vegna meiðsla í rassvöðva.
James ekki með gegn Panama - Konsa líklega bakvörður
TENGT EFNI

James ekki með gegn Panama - Konsa líklega bakvörður

Anderson er að fara að ganga frá 116 milljóna punda félagaskiptum til Manchester City frá Nottingham Forest og hefur fengið leyfi til að gangast undir læknisskoðun eftir að allir aðilar hafa skipst á pappírum.

Eins og áður hefur komið fram mun Reece James ekki vera með gegn Panama og það eru líkur á því að hann verði ekki með í 32-liða úrslitunum.

England er á toppnum í L-riðli með jafn mörg stig og Gana og stigi á undan Króatíu. Panama rekur lestina án stiga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.