Julian Nagelsmann landsliðsþjálfari Þýskalands tilkynnti í dag að Lennart Karl gæti misst af heimsmeistaramótinu eftir að hann meiddist á æfingu.
Karl er aðeins 18 ára gamall og er þrátt fyrir ungan aldur að berjast um sæti í byrjunarliðinu hjá stórveldi FC Bayern og sterku landsliði Þýskalands.
Karl er sóknartengiliður að upplagi og kom með beinum hætti að 17 mörkum í 40 leikjum með Bayern á tímabilinu. Þá á hann eina stoðsendingu í þremur landsleikjum.
„Þetta lítur ekki vel út, við erum að bíða eftir niðurstöðum úr rannsókn. Við gætum þurft að fá nýjan mann í staðinn," segir Nagelsmann.
21.05.2026 15:21
Neuer verður aðalmarkvörður Þýskalands á HM
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!





