PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 09:35
Elvar Geir Magnússon
Sófaliðið - Úrvalslið leikmanna sem voru ekki valdir á HM
Það var blaut tuska fyrir Camavinga að vera ekki valinn.
Það var blaut tuska fyrir Camavinga að vera ekki valinn.
Mynd: EPA
Margir furða sig á því að Pedro var ekki valinn.
Margir furða sig á því að Pedro var ekki valinn.
Mynd: EPA
Of hæfileikaríkur til að vera heima? Nei.
Of hæfileikaríkur til að vera heima? Nei.
Mynd: EPA
Mistök hjá Huijsen að velja Spán?
Mistök hjá Huijsen að velja Spán?
Mynd: EPA
Jeremie Frimpong verður í sófanum að horfa á HM.
Jeremie Frimpong verður í sófanum að horfa á HM.
Mynd: EPA
Tuchel valdi ekki Trent.
Tuchel valdi ekki Trent.
Mynd: EPA
Palmer er úti í kuldanum.
Palmer er úti í kuldanum.
Mynd: EPA
HM hefst í næstu viku og loksins eftirvæntingin meðal fótboltaáhugafólks er að byggjast upp.

Öll landsliðin hafa opinberað sína hópa og margir sitja eftir með sárt ennið. Við settum saman úrvalslið leikmanna sem ekki fengu kallið frá sínum þjóðum og einnig gríðarlega öflugan varamannabekk!

Ítrekun: Úrvalsliðið er sett saman úr leikmönnum þeirra þjóða sem komust á HM.



Lucas Chevalier (Frakkland) stendur í markinu. Keyptur til PSG frá Lille fyrir 40 milljónir evra fyrir ári en missti sæti sitt hjá franska stórliðinu og er fjórði eða fimmti í goggunarröð franska landsliðsins.

Jeremie Frimpong (Holland) var fenginn til Liverpool til að fylla skarð Trent Alexander-Arnold (sem einmitt fékk ekki heldur kallið frá þjóð sinni (nánar að því síðar)).

Harry Maguire (England) fékk ekki kallið frá Thomas Tuchel og mamma hans varð bálreið. Þessi mikli leiðtogi var frábær hjá Manchester United seinni hluta tímabils og margar hökur fóru í gólf þegar hann var ekki valinn.

Dean Huijsen (Spánn) fæddist í Hollandi og lék fyrir hollensku yngri landsliðin en skipti til Spánar sem mögulega voru stór mistök. Í fyrsta sinn er enginn frá Real Madrid í spænska landsliðshópnum.

Alejandro Balde (Spánn) leikmaður Barcelona tapaði samkeppni gegn Marc Cucurella og Alejandro Grimaldo.

Eduardo Camavinga (Frakkland) miðjumaður Real Madrid situr eftir með sárt ennið. Frakkland er stjörnum prýtt lið en það má færa rök fyrir því að miðsvæðið sé með minnstu breiddina.

Adam Wharton (England) miðjumaður Crystal Palace fékk ekki kallið. Jordan Henderson býr yfir mikilli reynslu en er faglegt að velja hann frekar en Wharton?

Diego Luna (Bandaríkin) miðjumaður Real Salt Lake prýddi auglýsingaskilti á Times torginu í New York fyrir mótið og lék í auglýsingum. Hefur komið að sjö mörkum í sextán landsleikjum en Mauricio Pochettino ákvað að skilja hann eftir heima.

Mika Godts (Belgía) er spennandi ungur kantmaður sem er mjög fjölhæfur og kom að yfir 30 mörkum fyrir Ajax. En það var ekki nóg til að komast í hópinn hjá Rudi Garcia.

Phil Foden (England) leikmaður Manchester City var ekki valinn af Tuchel. Átti erfitt tímabil en margir sparkspekingar töldu að hann væri of hæfileikaríkur til að hægt væri að skilja hann eftir heima. Tuchel er á öndverðum meiði.

Joao Pedro (Brasilía) var besti leikmaður Chelsea á tímabilinu en það var ekki nóg fyrir Carlo Ancelotti. Fyrrum frægð Neymars náði að vega þyngra og þá fær Igor Thiago í Brentford tækifæri til að láta ljós sitt skína.

Varamannabekkur:

Þá skoðum við varamannabekkinn. Þar er António Silva (Portúgal) sem er mikil metinn 22 ára miðvörður Benfica sem datt út í kuldann á versta mögulega tíma.

Trent Alexander-Arnold (England) átti ekki nægilega gott tímabil með Real Madrid og er of mikill 'lúxus-leikmaður' að mati Tuchel.

Hinn 21 árs gamli miðjumaður Mateus Fernandes (Portúgal) hjá West Ham er undir smásjám stórliða en hlaut ekki náð fyrir augum Roberto Martínez.

Tanner Tessmann (Bandaríkin) spilar á miðju Lyon. Hann missti af lokakafla tímabilsins vegna meiðsla en búist var við því að hann yrði klár fyrir HM. Pochettino tekur hinsvegar enga áhættu.

Paulo Dybala (Argentína) leikmaður Roma er hæfileikaríkur en er hægt og rólega að kveðja sviðsljósið. Hinn 18 ára gamli Franco Mastantuono (Argentína) hjá Real Madrid er hinsvegar framtíðarstjarna sem þarf að bíða lengur með að bragða á HM.

Morgan Gibbs-White (England) spilaði frábærlega með Nottingham Forest, sérstaklega eftir áramót þar sem hann skilaði tólf deildarmörkum.

Cole Palmer (England) var heldur ekki valinn en hann átti brösótt tímabil með Chelsea. Áfall fyrir Nike sem fékk Palmer til að leika í rándýrri auglýsingu fyrir HM.

Luis Suarez (Úrúgvæ) er markahæsti leikmaður þjóðar sinnar og tilkynnti að hann væri klár í að taka landsliðsskóna fram að nýju fyrir mótið. Marcelo Bielsa sagði takk, en nei takk.

Að lokum á bekknum: Richarlison (Brasilía) sem átti erfitt tímabil með Tottenham.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner