Arsenal er að ganga frá kaupum á tveimur leikmönnum. Það eru þeir Nuno Tavares og Albert Sambi Lokonga.
Tavares er vinstri bakvörður sem kemur til Arsenal frá Benfica. Arsenal borgar átta milljónir punda fyrir hann.
Tavares er vinstri bakvörður sem kemur til Arsenal frá Benfica. Arsenal borgar átta milljónir punda fyrir hann.
Albert Lokonga er miðjumaður sem Arsenal er að kaupa frá Anderlecht. Arsenal hefur náð samkomulagi við belgíska félagið og kostar Lokonga um sautján milljónir punda.
Báðir eru þeir 21 árs gamlir. Tavares er í sóttkví í London og í kjölfarið verður hann kynntur sem leikmaður félagsins.
Athugasemdir