Finnur Tómas: Allir vita að fótbolti er íþrótt sem krefst sjálfstrausts

Finnur Tómas Pálmason, leikmaður KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Finnur Tómas Pálmason, leikmaður KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var bara góður leikur og gott að svara fyrir það sem gerðist uppá Skaga fyrir viku, bara virkilega gaman að geta svarað því,“ sagði Finnur Tómas Pálmason, leikmaður KR, eftir 5-1 sigur gegn ÍA á Meistaravöllum í dag.
Það hefur mikið verið rætt um frammistöðu KR liðsins á náttúrulegu grasi í sumar en stigasöfnun hefur heldur betur verið dræm á grasi. Kristallaðist þessi munur á frammistöðum vegna mismunandi undirlags í þessum tveimur leikjum gegn ÍA?
„Já ég held sko, það er bara mismunandi hugarfar sem þú þarft að fara með þegar þú ferð á gras á Íslandi og við höfum verið í smá brasi þegar við höfum farið upp á Skaga em það er kannski bara eitthvað sem við þurfum að ræða fyrir næsta tímabil en við erum bara vanir að vera að æfa hérna og við erum með aðeins meira sjálfstraust en klárlega eitthvað sem við þurfum að bæta fyrir næsta tímabil.“
Finnur Tómas, sem fékk mikla gagnrýni fyrir sína spilamennsku á síðasta tímabili, hefur spilað feikilega vel á þessu tímabili. Aðspurður hvernig hann metur tímabilið sitt í ár samanborið við tímabilið í fyrra segir hann:
„Það er kannski erfitt að segja eitthvað eitt. Ég held bara, ég er búinn að æfa vel og fór vel af stað bara eins og allt liðið og eins og allir vita að fótbolti er íþrótt sem krefst sjálfstrausts og ég held að maður hafi náð að halda því heilt yfir í sumar sem var erfiðara í fyrra þegar við vorum upp og niður. Ég held að það sé klárlega bara sjálfstraustið og hvernig maður er að æfa. Maður heldur betra jafnvægi yfir heilt sumar.“
Sigurður Breki Kárason, liðsfélagi Finns, hefur spilað vel í sumar þegar hann hefur fengið tækifærið. Finnur þekkir það sjálfur að vera ungur að ryðja sér braut inn í KR liðið, hvernig finnst honum Sigurður Breki vera að tækla stærra hlutverk?
„Bara geggjaður. Náttúrulega alls öðruvísi leikmaður en ég en það er bara ógeðslega gaman að vera með svona stráka, ekki bara Sigurður Breki, þeir eru fleiri og það er bara gaman að vera með svona dýnamík í klefanum, að vera með unga og eldri og ég er bara mjög ánægður með hvernig þeir eru búnir að spila í sumar.“
Viðtalið við Finn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
