Belgar með harðorða yfirlýsingu gegn FIFA


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Fyrr í dag var leikbanni bandaríska framherjans Folarin Balogun á heimsmeistaramótinu aflétt. Hann verður því klár í slaginn til að byrja leikinn í 16-liða úrslitum gegn Belgíu.

TENGT EFNI
Trump lét afturkalla leikbannið
Balogun fékk rautt spjald í sigri Bandaríkjanna gegn Bosníu í 32-liða úrslitum og var dómurinn gagnrýndur af fótboltasérfræðingum.
Bandaríkjamenn voru alls ekki sáttir svo Hvíta húsið heyrði beint í FIFA til að ræða um ákvörðunina.
Samkvæmt FIFA fór málið til sjálfstæðrar rannsóknarnefndar sem ákvað að fella leikbannið úr gildi, en það eru ekki margir sem trúa þeirri staðhæfingu. Belgar eru allt annað en sáttir með þessa ákvörðun FIFA, þeir segja hana vera ólöglega og á skjön við reglur fótboltans.
„Belgíska fótboltasambandið er furðu lostið yfir ákvörðun FIFA að aflétta leikbanni Folarin Balogun svo hann geti spilað með Bandaríkjunum gegn Belgíu," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Belgum.
„Grein 66.4 í reglum FIFA segir skýrt að rautt spjald leiði sjálfkrafa til leikbanns í næsta leik, eins og hefur verið tilfellið með öll rauð spjöld sem hafa verið úthlutuð hingað til á heimsmeistaramótinu.
„Ákvörðunin fer einnig gegn opinberri reglugerð fyrir HM 2026. Þar kemur fram í Grein 10.5 að rautt spjald leiði sjálfkrafa til leikbanns í næsta leik.
„Belgíska fótboltasambandið er að rannsaka alla mögulega valkosti í stöðunni til að tryggja lögmæt réttindi allra þátttökuþjóða á HM og vernda grundvallarreglur um heiðarlegan leik í íþróttinni okkar."
Þetta verður í fyrsta sinn frá því að rauð spjöld voru kynnt til sögunnar fyrir HM 1970 sem leikmaður fær rautt spjald í leik á heimsmeistaramótinu og spilar samt næsta leik.

TENGT EFNI
Trúði ekki fréttum um Balogun: Hélt þetta væri gervigreindin
0 - Since the introduction of yellow and red cards at the 1970 edition, no player has ever received a red card and gone on to play in his team's next match at the FIFA World Cup.
— OptaJohan (@OptaJohan) July 5, 2026
Unprecedented. pic.twitter.com/mqPXgUBju3


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA



