05.08.26 - 21:25
Brynjar Ingi Erluson
AGF fer með forystu inn í seinni leikinn - Brann tapaði

Mikael Neville átti góðan leik með AGF

Mynd: AGF

Mikael Neville átti góðan leik með AGF

Mynd: AGF
Íslendingarnir í AGF unnu 2-1 sigur á Sabah Baku frá Aserbaísjan í 3. umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í Danmörku í kvöld.
Mikael Neville Anderson átti góðan leik með AGF sem þurfti að hafa verulega fyrir úrslitunum gegn Aserbaísjanmeisturunum. Mikael fékk 7,2 í einkunn hjá Flashscore.
Tómas Óli Kristjánsson sat allan tímann á varamannabekk AGF. Síðari leikurinn fer fram á Bank Respublika-vellinum í Masazir í næstu viku.
Eggert Aron Guðmundsson og Kristall Máni Ingason voru báðir í byrjunarliði Brann sem tapaði 1-0 fyrir Apollon frá Kýpur í fyrri leik liðanna í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Leikurinn fór fram í Bergen.
Sævar Atli Magnússon kom inn af bekknum í síðari hálfleik. Úrslitin voru svekkjandi fyrir Brann sem átti fullt erindi í Apollon og lifir vonin góðu lífi fyrir seinni leikinn.
Panathinaikos gerði þá 1-1 jafntefli við búlgarska liðið CSKA Sofia í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Sverrir Ingi Ingason, fyrirliði Panathinaikos, var að sjálfsögðu ekki með en hann verður frá keppni næstu mánuði vegna krossbandsslita.