Fotbolti.net
05.08.26 - 20:22
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Argentínskur landsliðsmaður á leið til Roma

Argentínskur landsliðsmaður á leið til Roma
Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Roma er að landa argentínska landsliðsmanninum Nahuel Molina frá Atlético Madríd fyrir átján milljónir evra.
Molina er 28 ára gamall hægri bakvörður sem varð heimsmeistari með Argentínu fyrir fjórum árum og var í liðinu sem vann silfur á heimsmeistaramótinu í sumar.

Hann hefur leikið með Atlético Madríd undanfarin fjögur ár undir stjórn landa síns, Diego Simeone. Þar áður spilaði hann með Udinese á Ítalíu og Boca Juniors í heimalandinu.

Næsti áfangastaður Molina verður Rómaborg. Hann hefur náð munnlegu samkomulagi við Roma um kaup og kjör og félögin hafa komist að samkomulagi um 18 milljóna evra kaupverð.

Molina mun skrifa undir langtímasamning á næstu dögum og verður fimmti leikmaðurinn sem Roma fær í sumar.

Áður höfðu Santiago Castro, Kostas Koulierakis og Daniele Ghilardi gengið til liðs við félagið. Þá keypti Roma Donyell Malen frá Aston Villa eftir að hann lék með liðinu á láni síðari hluta síðasta tímabils.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.