Fotbolti.net
05.08.26 - 09:49
Elvar Geir Magnússon

Arsenal búið að ná samkomulagi við Newcastle um kaupverð á Bruno

Á leið í læknisskoðun.

Á leið í læknisskoðun.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal hefur náð samkomulagi við Newcastle um kaup á brasilíska miðjumanninum Bruno Guimaraes fyrir 75 milljónir punda.

Bruno er fyrirliði Newcastle en hann mun gangast undir læknisskoðun í Lundúnum á næstu dögum.
Guimaraes bíður eftir grænu ljósi
TENGT EFNI

Guimaraes bíður eftir grænu ljósi

Arsenal vildi upphaflega ekki borga yfir 60 milljónir punda fyrir brasilíska miðjumanninn, sem verður 29 ára í nóvember og á tvö ár eftir af samningi sínum. Newcastle var með verðmiða upp á lágmark 80 milljónir punda.

Leikmaðurinn sjálfur var ákveðinn í að ganga í raðir Arsenal. Guardian segir að hann hafi talað við nýjan stjóra Newcastle, Matthias Jaissle, á mánudaginn og sagt honum að hann vildi færa sig um set.

Lyon í Frakklandi, fyrrum félag Bruno, mun fá um 7 milljónir punda þar sem það var með ákvæði um að fá 20% af hagnaði af framtíðarsölu hans.

Newcastle er að selja þriðja lykilmanninn frá sér í þessum glugga eftir að Anthony Gordon og Sandro Tonali fóru til Barcelona og Newcastle. Þá ákvað stjórinn Eddie Howe að best væri að víkja og Jaissle var ráðinn í hans stað.
Í leik með brasilíska landsliðinu.

Í leik með brasilíska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.