05.08.26 - 21:44
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal fékk á sig þrjú í fyrri hálfleik - PSG tapaði fyrir Mallorca

Kepa átti vondan dag á skrifstofunni

Mynd: EPA

Piero Hincapie skoraði eina mark Arsenal

Mynd: EPA

Kepa átti vondan dag á skrifstofunni

Mynd: EPA
Arsenal fékk á sig þrjú mörk í fyrri hálfleik þegar liðið tapaði 3-1 fyrir Real Betis í æfingaleik í kvöld. Kepa Arrizabalaga nýtti ekki tækifærið til að sýna að hann geti veitt David Raya alvöru samkeppni um markvarðarstöðuna.
Arsenal hóf undirbúningstímabilið af krafti með 4-1 sigri á Girona á dögunum en fylgdi honum ekki eftir gegn Real Betis í dag.
Mikel Arteta stillti upp gríðarlega sterku liði en það kom ekki í veg fyrir að Arsenal fengi á sig þrjú mörk í fyrri hálfleik.
Rodrigo Riquelme kom Betis yfir eftir skelfilegt úthlaup Kepa í hornspyrnu. Markvörðurinn misreiknaði boltann algerlega, sem sveif yfir hann og beint til Riquelme sem skoraði.
Nelson Deossa tvöfaldaði forystuna með skoti fyrir utan teig. Hann lét vaða með vinstri fæti fyrir utan teig og þrumaði boltanum yfir Kepa, sem hefði líklega átti að gera betur.
Piero Hincapie minnkaði muninn fyrir Arsenal með auðveldum skalla eftir hornspyrnu en Pablo Fornals svaraði skömmu síðar. Hann skoraði þriðja mark Betis með föstu skoti fyrir utan teig, niðri í vinstra hornið fram hjá hreyfingarlausum Kepa.
Frammistaðan var langt frá því að vera nógu góð hjá Arsenal. Liðið mætir Borussia Dortmund í Emirates-bikarnum eftir fjóra daga og spilar síðan við Como 12. ágúst.
Tvöfaldir Evrópumeistarar PSG fengu einnig þrjú mörk á sig í dag og töpuðu 3-0 fyrir Mallorca. Zito Luvombo, Jan Virgili og Antonio Raillo skoruðu mörkin.
PSG var reyndar án margra lykilmanna. Khvicha Kvaratskhelia var sá eini í byrjunarliðinu sem lék reglulega með liðinu á síðustu leiktíð en Willian Pacho kom inn af bekknum.
PSG mætir Manchester United eftir þrjá daga áður en liðið leikur við Aston Villa í Ofurbikar Evrópu 12. ágúst.