Fotbolti.net
05.08.26 - 16:14
Kári Snorrason

Aston Villa að landa Ruggeri

Í baráttunni við Lamine Yamal.

Í baráttunni við Lamine Yamal.

Canon

Mynd: EPA

Aston Villa er að festa kaup á ítalska bakverðinum Matteo Ruggeri frá Atletico Madrid.

Spænski miðillinn Marca fullyrðir að félögin hafi náð saman og að leikmaðurinn gangi í raðir Villa fyrir 18 milljónir evra, sem gæti hækkað um sex milljónir eftir árangurstengdum bónusgreiðslum.
Ruggeri er 24 ára gamall vinstri bakvörður sem er ætlað að fylla í skarð Lucas Digne sem er að ganga í raðir PSG.

Ítalinn gekk í raðir Atletico fyrir ári síðan frá uppeldisfélaginu Atalanta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.