05.08.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Benoný Breki og Stockport koma á flugi inn í tímabilið

Mynd: Stockport County

Mynd: Stockport County
Benoný Breki Andrésson og Stockport County hafa átt gott undirbúningstímabil. Liðið er ósigrað og kemur á góðu skriði inn í ensku C-deildina. Markmið liðsins er að fara upp í Championship deildina.
Benoný lagði upp eina mark liðsins gegn Championship-liði Preston um helgina og í gær skoraði hann svo tvö mörk í sigri Stockport á Salford þar sem Paul Scholes var á hliðarlínunni.
Leikurinn var spilaður fyrir luktum dyrum og vann Stockport 5-0 sigur.

Stockport mætir Doncaster í 1. umferð deildabikarsins um komandi helgi og svo tekur C-deildin.
Benoný er nýorðinn 21 árs. Hann kom til Stockport veturinn 2024/25 eftir að hafa orðið markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar og hafa slegið markametið í deildinni.