05.08.26 - 09:19
Elvar Geir Magnússon
Chelsea að ganga frá samkomulagi um Chavarria

Chavarria er vinstri bakvörður.

Mynd: EPA

Chavarria er vinstri bakvörður.

Mynd: EPA
Chelsea er að ganga frá samkomulagi við Rayo Vallecano um kaup á varnarmanninum Pep Chavarria.
Lundúnafélagið hafði þegar náð munnlegu samkomulagi við þennan 28 ára leikmann um kaup og kjör og er að fanga frá kaupum fyrir rúmlega 16 milljónir punda, með möguleika á hækkun eftir ákvæðum.
Chavarria er vinstri bakvörður sem er í miklum metum hjá Xabi Alonso, stjóra Chelsea, eftir að hafa mætt honum þegar hann stýrði Real Madrid á síðasta tímabili.

Bláliðar hafa verið að vinna í því að landa Chavarria í u.þ.b. mánuð en viðræður gengið hægt. Chavarria lét það skýrt í ljós við vinnuveitendur sína hjá Rayo að hann vildi fara á Stamford Bridge.
Hann kæmi með aukna breidd í vinstri bakvarðarstöðuna eftir að Marc Cucurella var seldur til Real Madrid í sumar. Þá er hann annar reynslumikill leikmaður sem kæmi til Chelsea en Xabi Alonso hefur hækkað meðalaldur liðsins með því að fá Danny Welbeck, 35 ára, og Jordan Henderson, 36 ára.