Fotbolti.net
05.08.26 - 19:00
Brynjar Ingi Erluson

Diljá skoraði tvennu og Hlín hafði betur gegn systur sinni í Meistaradeildinni

Diljá var frábær með Brann

Diljá var frábær með Brann

Canon

Mynd: Brann

Kvennaboltinn
Þrjú Íslendingafélög komust áfram í forkeppni í Meistaradeild kvenna í dag. Diljá Ýr Zomers gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk fyrir Brann í stórsigri.
Diljá var í byrjunarliði Brann sem lenti ekki í neinum vandræðum með Mitrovica frá Kósóvó.

Brann vann öruggan 5-0 sigur og skoraði Diljá tvö mörk í fyrri hálfleik. Hún fór af velli þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir.

Brann mætir gríska liðinu PAOK eftir þrjá daga og fer sigurvegarinn áfram í síðustu umferð forkeppninnar.

Hlín Eiríksdóttir og stöllur hennar í Malmö unnu Vålerenga, 1-0. Fanney Inga Birkisdóttir stóð í marki Vålerenga og Arna Eiríksdóttir var í vörninni.

Malmö mætir annað hvort Eintracht Frankfurt eða Omonia í næsta leik.

Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn í vörn Hammarby sem vann Apolonia Fier örugglega, 4-0. Hammarby mætir Juventus eða Torreense.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir kom inn af bekknum þegar Bröndby tapaði 2-0 fyrir Ajax.

Emelía Óskarsdóttir kom þá inn á í síðari hálfleik í 4-1 sigri Köge á Riga FC. Köge mætir Hearts í næsta leik.

Katla Tryggvadóttir var að lokum í byrjunarliði Fiorentina sem vann Cesena stórt, 6-0, í æfingaleik.
Hlín hafði betur gegn systir sinni

Hlín hafði betur gegn systir sinni

Canon

Mynd: Malmö

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.