Fotbolti.net
05.08.26 - 14:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Eva Olid tekin við Man Utd - „Draumur að verða að veruleika"

Eva Olid tekin við Man Utd - „Draumur að verða að veruleika"
Canon

Mynd: Manchester United

Kvennaboltinn
Spánverjinn Eva Olid er nýr þjálfari kvennaliðs Manchster United og skrifar hún undir tveggja ára samning með möguleika á eins árs framlengingu.

Hún tekur við liðinu eftir að Marc Skinner hætti óvænt sem þjálfari liðsins á mánudag eftir fimm ár í starfi.

Olid, sem er fertug, kemur frá Hearts þar sem hún gerði liðið að skoskum meistari í fyrsta skiptið í sögu félagsins á síðasta tímabili. Hún var í fimm ár hjá Hearts.
Sagt hefur verið frá því að takmarkaðar fjárfestingar og metnaður Man Utd fyrir kvennaliðinu hafi orðið til þess að Skinner vildi hætta. Liðið endaði í 4. sæti ensku deildarinnar á síðasta tímabili og var stofnað fyrir átta árum síðan.

„Tækifærið að verða aðalþjálfari kvennaliðs Manchester United er draumur að verða að veruleika. Innviðir félagsins eru framúrskarandi og allt til alls til að ná markmiðum okkar. Við erum með frábæra æfingaaðstöðu, akademíu sem framleiðir leikmenn sem geta spilað í liðinu og frábært starfsfólk í kringum liðið."

„Það er mikið af hæfileikaríkum leikmönnum í hópnum og ég er spennt að vinna með leikmönnum og reyna hámarka þeirra getu. Ég er að koma til Manchester United á spennandi tíma. Það er í langtíma stefnu félagsins að ná árangri og ég get ekki beðið eftir því að undirbúa lið sem mun gera magnaða stuðningsmenn okkar stolta,"
segir Olid.
Eva Olid tekin við Man Utd - „Draumur að verða að veruleika"
Canon

Mynd: Manchester United

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.