05.08.26 - 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Fulham að sækja öflugan miðjumann

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Alvaro Arbeloa og félagar í Fulham færast nær því að sækja annan leikmenn í hópinn en viðræðum miðar vel áfram við Southampton um norður-írska miðjumanninn Shea Charles.
Fulham gekk á dögunum frá kaupum á Gonzalo Garcia og Cesar Palacios frá Real Madrid en félagið er hvergi nærri hætt á leikmannamarkaðnum.
Næstur inn gæti orðið hinn 22 ára gamli Charles frá Southampton. Kaupverðið er talið nema um 25 milljónum punda og eru viðræður félaganna langt komnar.
Sky Sports greindi frá því í síðasta mánuði að Fulham væri eitt nokkurra félaga sem hefði áhuga á Charles.
Leeds hefur lagt fram þrjú tilboð í miðjumanninn en Southampton hafnaði þeim öllum. Síðasta tilboðið stendur enn ef félagið skiptir um skoðun en útlit er fyrir að Fulham hafi nú tekið forystuna í kapphlaupinu.
Charles er uppalinn hjá Manchester City en hefur leikið 76 leiki og skorað sex mörk fyrir Southampton. Þá á hann að baki 35 landsleiki fyrir Norður-Írland.