Fotbolti.net
05.08.26 - 22:38
Brynjar Ingi Erluson

Guimaraes búinn í læknisskoðun hjá Arsenal

Guimaraes búinn í læknisskoðun hjá Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski miðjumaðurinn Bruno Guimaraes hefur lokið læknisskoðun hjá Englandsmeisturum Arsenal og er nú skrefi nær því að ganga í raðir félagsins frá Newcastle United.
Newcastle hefur samþykkt 75 milljóna punda tilboð Arsenal í Bruno Guimaraes og aðeins á eftir að ganga frá síðustu smáatriðunum.

Fabrizio Romano segir að miðjumaðurinn hafi lokið læknisskoðun hjá Arsenal í dag. Hann skrifar næst undir fjögurra ára samning og verður síðan kynntur til leiks hjá Englandsmeisturunum.

Guimaraes er 28 ára gamall og hefur borið fyrirliðabandið hjá Newcastle undanfarin tvö ár.

Hann gekk til liðs við félagið frá Lyon árið 2022 og vann hug og hjörtu stuðningsmanna á skömmum tíma.

Guimaraes er jafnframt fastamaður í brasilíska landsliðinu og hefur skorað þrjú mörk í 48 landsleikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.