05.08.26 - 16:57
Kári Snorrason
Kulusevski verið frá í fjórtán mánuði en endurkoman í augsýn

Sænski kantmaðurinn hefur verið lengi frá.

Mynd: EPA

Sænski kantmaðurinn hefur verið lengi frá.

Mynd: EPA
Dejan Kulusevski hefur verið fjarri góðu gamni í rúma fjórtán mánuði vegna alvarlegra hnémeiðsla. Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, segir að Svíinn sé á batavegi og nálgist endurkomu.
„Kulusevski er í frábæru formi og er einn besti leikmaðurinn sem við höfum í hópnum. Ég vil ekki setja óþarfa pressu á hann eða flýta endurhæfingunni.
Ég vona þó að hann verði klár til leiks sem allra fyrst,“ sagði De Zerbi við BBC.

Kulusevski hefur ekki spilað síðan 11. maí 2025. Meiðslin urðu töluvert alvarlegri en þau litu út í fyrstu og hefur hann tvívegis farið undir hnífinn síðastliðið ár.