05.08.26 - 10:10
Elvar Geir Magnússon
Man Utd horfir til Gibbs-White - Margir orðaðir við Spurs

Morgan Gibbs-White.

Mynd: EPA

Folarin Balogun.

Mynd: EPA

Savinho.

Mynd: EPA

Nicolas Jackson.

Mynd: EPA

Morgan Gibbs-White.

Mynd: EPA

Nýtt tímabil nálgast óðfluga og það er gósentíð hjá slúðurblöðunum. Hér er allt það helsta sem er í gangi í umræðunni en BBC tók saman.
Manchester United horfir til miðjumannsins Morgan Gibbs-White (26) hjá Nottingham Forest sem mögulegan arftaka Bruno Fernandes (31) ef portúgalski landsliðsmaðurinn yfirgefur Old Trafford. (Mail)
Manchester United og Chelsea hafa bæði áhuga á kólumbíska miðverðinum Jhon Lucumi (28) hjá Bologna. Ítölsku félögin Juventus og Como eru með hann á sínum óskalistum. (Quotidiano Sportivo)
Milliliðir hafa boðið Tottenham að fá bandaríska sóknarmanninn Folarin Balogun (25) en framtíð þessa fyrrum leikmanns Arsenal hjá Mónakó er í óvissu. (Sun)
Tottenham er í sambandi við Manchester City varðandi brasilíska kantmanninn Savinho (22) og hefur einnig áhuga á hollenska sóknarleikmanninum Cody Gakpo (27) hjá Liverpool og franska sóknarmiðjumanninum Jean-Matteo Bahoya (21) hjá Eintracht Frankfurt. (Athletic)
Ef Savinho ákveður að fara til Tottenham þá mun Manchester City snúa sér að portúgalska kantmanninum Pedro Neto (26) og hefur þegar sett sig í samband við umboðsmenn hans. (Fabrizio Romano)
Nottingham Forest reynir að kaupa hollenska miðjumanninn Tijjani Reijnders (28) frá Manchester City fyrir 55 milljónir punda. (Mail)
Real Madrid ætlar að taka upp þráðinn í samningaviðræðum við umboðsmenn Vinicius Jr (26) í þessari viku en félagið er ekki tilbúið að hækka nýjasta tilboð sitt. Brasilíumaðurinn hefur verið orðaður við Arsenal. (ESPN)
Tottenham hefur áhuga á Nicolas Jackson (25), sóknarmanni Chelsea. En hefur ekki sett sig í samband vegna senegalska landsliðsmannsins, sem er metinn á 65 milljónir punda. (Mail)
Chelsea hefur áhuga á portúgalska markverðinum Diogo Costa (26) hjá Porto en hann hefur oft verið orðaður við Manchester United og er með 51 milljón punda riftunarákvæði. (Mirror)
Manchester City vill fá argentínska markvörðinn Geronimo Rulli (34) frá Marseille og viðræður eru í gangi. (Fabrizio Romano)
Nýliðar Hull í ensku úrvalsdeildinni eru að keppa við West Ham, sem féll, um ísraelska kantmanninn Manor Solomans (27) sem er metinn á um 20 milljónir punda. (The i Paper)
Jadon Sancho (26), fyrrum kantmaður Manchester United, er með tilboð frá félögum í Evrópu, Sádi-Arabíu og Mið-Austurlöndum en enski landsliðsmaðurinn er að skoða möguleika sína. (Sky Sports)