05.08.26 - 16:18
Elvar Geir Magnússon
Palace semur við Tomiyasu og gæti líka fengið March

Takehiro Tomiyasu í baráttu við Matheus Cunha á HM.

Mynd: EPA

Crystal Palace hyggst semja við Takehiro Tomiyasu en hann hefur æft með liðinu til reynslu að undanförnu. Palace vill styrkja varnarmöguleika sína fyrir komandi tímabil.
Japanski landsliðsmaðurinn lék með Arsenal á árum áður í ensku úrvalsdeildinni. Hann er 27 ára fjölhær varnarmaður og hefur verið að glíma við hnémeiðsli undanfarin ár sem er ástæða þess að Palace vildi skoða ástand hans betur áður en ákveðið væri hvort semja ætti við hann.
Hann gekk í raðir Ajax þar sem hann spilaði átta leiki í lok síðasta tímabils og svo lék hann þrjá leiki fyrir Japan á HM.

Þá gæti Palace einnig boðið kantmanninum Solly March samning en hann yfirgaf Brighton í lok síðasta tímabils March er 32 ára.
Palace er með fleiri leikmenn til skoðunar og hefur áhuga á að fá Josh Acheampong, tvítugan varnarmann Chelsea, en ekki er vitað hvort Chelsea hyggist lána hann. BBC greindi frá því í síðustu viku að Palace hefði þá mikinn áhuga á Raphael Le Guen, miðverði Brest.

Solly Marsch í leik með Brighton 2022.

Mynd: EPA