Fotbolti.net
05.08.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þórsarar komnir upp úr holunni - „Lárus þú veist það bara núna"

Þórsarar komnir upp úr holunni - „Lárus þú veist það bara núna"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór hefur nælt í sjö stig úr síðustu þremur leikjum og kom sér af botnsætinu eftir sigur á Breiðabliki í gær.

Liðið hefur safnað 15 stigum í sumar og þar af eru 13 stig á móti fimm efstu liðum deildarinnar. Liðið vann tvo af fyrstu þremur leikjum sínum og beið síðan í tæpa þrjá mánuði eftir næsta sigri gegn Víkingi í síðasta mánuði.
Eiður Benedikt Eiríksson, aðstoðarþjálfari Þórs, var spurður út í það hvað hafi breyst í undanförnum leikjum.

„Ef þú horfir á byrjunina á mótinu voru flestir heilir. Útlendingarnir sem áttu að stíga upp og vera leiðtogarnir í liðinu voru með allt á hreinu," sagði Eiður.

„Við lendum í smá holu þegar líður á mótið og áttum erfitt með að komast upp úr henni. Ég trúi því núna að við séum komnir upp úr þessari holu og eru á leiðinni upp á við. Ef við höldum áfram í þessum gír getum við unnið öll lið."

Eiður segir að það sé komin meiri trú í hópinn.

„Hrós til flestra. Mér fannst Affi (Yann Emmanuel Affi) stíga hrikalega mikið upp í leiknum sem Aron (Aron Einar Gunnarsson) kom inn í og svo Gyrðir (Gyrðir Hrafn Guðbandsson) inn á miðjunni í síðasta leik. Það kemur meiri trú, leikmenn að spila sína fyrstu leiki í efstu deild, þeir eru orðnir skólaðari og reynslumeiri. Þeim er farnið að líða betur og farnir að sýna sitt rétta andlit," sagði Eiður.

Ragnar Óli Ragnarsson, Kristófer Kristjánsson og Victor Bertomeu voru ekki með í gær.

„Victor er hundrað prósent klár. Hann byrjar á móti ÍA, Lárus (Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA) þú veist það bara núna," sagði Eiður sem sagði að Kristófer yrði líklega klár en Ragnar væri spurningamerki.
Victor Bertomeu

Victor Bertomeu

Canon

Mynd: Þór

Eiður Ben: Þegar liðið spilar svona finnst mér Viðar húsvörður geta staðið þarna

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.