Fotbolti.net
05.08.26 - 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

VAR til Íslands? - „Lykillinn að þessu öllu saman"

VAR til Íslands? - „Lykillinn að þessu öllu saman"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Því var velt upp hér á Fótbolta.net á dögunum hvort að íslenskur dómari gæti í framtíðinni dæmt úrslitaleik HM. Dómararnir sem hafa dæmt þá úrslitaleiki hafa ekki komið frá stærstu löndum heims.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 1. ágúst á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, en boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
Eitt umræðuefni kom aftur og aftur upp í samtölum Fótbolta.net við viðmælendurna þrjá, Þórodd Hjaltalín, Kristin Jakobsson og Þórð Þorstein Þórðarson. Að þeirra mati gæti innleiðing VAR, myndbandsdómgæslu, á Íslandi skipt miklu máli fyrir framgang íslenskra dómara á alþjóðavettvangi.

„Lykillinn að þessu öllu saman er að við erum eitt af fáum löndum sem eru ekki með VAR. Þegar farið er úr undankeppni yfir í stærri leiki í deildarkeppnum og riðlakeppnum er ætlast til þess að dómarateymin séu með VAR-dómara. Við erum því miður ekki með það kerfi hér á Íslandi,“ segir Kristinn.

„Þótt dómararnir okkar séu hæfir sem VAR-dómarar eru þeir ekki reglulega að nota kerfið og það hefur áhrif á næstu skref á þeirra ferli.“

Þórður tekur undir það sjónarmið, þótt hann bendi jafnframt á að það sé hægt að ná langt án VAR.

„Við getum horft til Svíþjóðar. Svíar eru ekki með VAR í sinni deild en eiga samt dómara í elítuhópi UEFA. Glenn Nyberg var til dæmis fjórði dómari í undanúrslitum HM og dæmir í sænsku úrvalsdeildinni."

„Mín skoðun er samt sú að skortur á VAR hafi áhrif á framgang íslenskra dómara erlendis. Hvort VAR sé að fara að koma hingað veit ég ekki. Ég held að íslensku félögin séu einfaldlega ekki tilbúin í þann kostnað sem fylgir því að innleiða kerfið hér á landi, því þetta kostar mikla peninga.“


Þóroddur segir að dómararnir hafi þegar hafið undirbúning fyrir þann veruleika sem blasir við í alþjóðlegum fótbolta.

„Það er alveg klárt mál að það myndi hjálpa okkur að taka upp VAR. Við erum búnir að vinna ákveðna grunnvinnu með FIFA-dómurunum okkar og þjálfa þá til að dæma leiki þar sem VAR er notað.“

Hann bendir jafnframt á að VAR snúist ekki aðeins um möguleika íslenskra dómara erlendis heldur einnig um að bæta dómgæsluna hér heima.

„Burtséð frá möguleikum dómaranna okkar erlendis held ég að við, sem erum svona mikil fótboltaþjóð, verðum að taka upp VAR. Svo geta menn haft mismunandi skoðanir á því. Er VAR fullkomið? Langt því frá. Mun það þróast? Já, alveg klárlega. Ég held að við þurfum að vera með í þeirri þróun. VAR er ekkert að fara.“

Gæti Íslendingur dæmt úrslitaleik HM?
TENGT EFNI

Gæti Íslendingur dæmt úrslitaleik HM?

Kristinn Jakobsson.

Kristinn Jakobsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þóroddur Hjaltalín hér fyrir miðju.

Þóroddur Hjaltalín hér fyrir miðju.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.