Fotbolti.net
05.08.26 - 21:38
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Fjórir náðu sama áfanga og merkileg stigasöfnun Þórs. Missir KR af metinu?

Már Ægisson náði stórum áfanga á ferlinum í leiknum við ÍBV.

Már Ægisson náði stórum áfanga á ferlinum í leiknum við ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Már Ægisson úr Fram, Örvar Logi Örvarsson úr Stjörnunni, Adolf Daði Birgisson úr FH og Aron Sigurðarson úr KR náðu allir sama áfanganum í 17. umferð Bestu deildar karla sem lauk með leik FH og KR í Kaplakrika í kvöld.

Þó Þórsarar séu í fallsæti deildarinnar hafa þeir fengið langflest stig af liðunum sem eru í fimmta til tólfta sæti þegar þau hafa spilað gegn fjórum efstu liðum deildarinnar. Á sama tíma hafa tvö lið sem ekki eru í fallsæti tapað öllum sínum leikjum gegn sömu fjórum liðum. Hvernig lítur stigataflan út þegar þessir leikir eru hafðir til hliðsjónar?

KR-ingar náðu aðeins að skora eitt mark gegn FH í kvöld og þurfa þar af leiðandi að skora minnst þrjú mörk gegn Fram á mánudaginn til að jafna eða slá markamet.

Keflvíkingar eru í góðri stöðu og gætu með þessu áframhaldi átt sitt besta tímabil í átján ár.

Úrslitin í 17. umferð:
ÍBV - Fram 1-2
ÍA - Víkingur 2-2
Valur - Stjarnan 2-3
Þór - Breiðablik 1-0
Keflavík - KA 3-0
FH - KR 1-1

Staðan: Víkingur 44, Fram 37, KR 36, Breiðablik 29, Keflavík 22, Valur 19, ÍA 19, Stjarnan 18, ÍBV 16, KA 15, Þór 15, FH 14.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.