Kári Árna: Tökum þetta lið á heimavelli
Auglýsing

Kári í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta eru allt í lagi úrslit á erfiðum útivelli,\" sagði Kári Árnason við Fótbolta.net eftir 1-1 jafnteflið í Úkraínu í kvöld.
„Mér fannst við vera góðir í fyrri hálfleik og með leikinn undir full control. Við hefðum átt að skora fleiri mörk. Mér leið eins og við gætum spilað í þrjá daga án þess að þeir mydu skora og svo kemur þetta í andlitið á okkur. Þeir voru ekki að ógna markinu neitt. Þeir voru meira með boltann en við vorum að ógna þeirra marki.\"
„Seinni hálfleikurinn var ekki nógu góður. Við þurfum að endurskoða varnarleik liðsins. Þegar gengur ekki að pressa þurfum við kannski að falla dýpra og byrja að verjast aftar á vellinum.\"
„Mér fannst þeir ekki ógna okkur mikið. Þeir skapa einhver skotfæri og eru með góða skotmenn. Við hefðum kannski getað lokað á það betur. Við tökum þetta lið á heimavelli, það er ljóst.\"
Íslendingar voru tíu inni á vellinum þegar Úkraína jafnaði en Ari Frey Skúlason var farinn meiddur af velli og Hörður Björgvin Magnússon var ekki kominn inn á.

„Auðvitað eru menn fúlir. Talningin klikkar aðeins og þetta er hægri kantmaður sem kemur inn á teig. Þetta er ekkert sem við erum brjálaðir yfir. Þetta er eitthvað sem við lærum af og þetta kemur ekki fyrir aftur.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.